Jæja - það líður bara allt of langur tími milli blogga hjá
mér! En mér og bumbukrútti líður bara alveg einstaklega vel
Bumbukrútt stækkar og stækkar og mamman er löngu hætt að
sjá niður á tær sínar
Ég hef verið að reyna að bæta aðeins
á fataskápinn þar sem "mjóu" fötin eru löngu hætt að passa vegna
kúlunnar og fötin frá því forðum daga þegar skvabbið fékk að leika
lausum hala um maga og mjaðmir passa bara ekki heldur! Ekki
að þau séu orðin of lítil heldur eru þau bara of víð um rass, klof,
handleggi og þar fram eftir götunum. Svolítið skrýtið að
upplifa fólk segja við mig að ég sé bara ekkert nema kúlan þar sem
á hinum tveimur meðgöngunum var ég líkari kringlóttum körfubolta en
óléttri konu
Ég hef sem sagt ekki misst áhugann á
fatakaupum þrátt fyrir stækkandi maga enda er bara svolítið gaman
að spígspora fín og flott með kúluna beint út í loftið og bros sem
nær milli beggja eyrna
Ég fór annars á heilsusýninguna í Egilshöll um helgina og sá þar
margt markvert. Ég heillaðist sérstaklega af íslenskri
framleiðslu á ókemískum kremum og öðru slíku og keypti mér m.a.
bumbugaldur á bumbuna frá Villimey og fótasmyrsl frá Sólu.
Svo fór ég heim, lét renna í freyðibað og smurði mig hátt og lágt
með nýju kremunum mínum
Annað sem sló í gegn hjá fjölskyldunni var lífræna torgið hennar
Sollu grænu. Fyrir nokkru síðan hætti ég að kaupa unnar
kjötvörur, þ.á.m. álegg á brauð. Síðan þá höfum við verið að
uppgötva ýmis matvæli sem hægt er að setja á brauð og þarna bættist
eitt slíkt í hópinn... nefnilega hnetusmjörið hennar Sollu grænu -
99,5% hnetur, enginn sykur né aukaefni. Strákarnir mínir
hreinlega kolféllu fyrir þessu og er dósin næstum því búin.
Svo bættum við á döðlubirgðir okkar en lífrænu döðlurnar hennar eru
hreint lostæti líka. Mjög sniðugar í nestisboxið ásamt
ávöxtum.
Jæja - betri helmingurinn verður erlendis alla næstu viku og fer
í fyrramálið svo ég ætla að næla mér í knús og krús áður en hann
fer
Þangað til næst...