Með viljann að vopni legg ég púkann að velli

Breyttur lífstíll

27.12.2006 16:51:35 / amira

Fæddur drengur

Lítið og yndislegt kraftaverk kom í heiminn nokkrum dögum fyrir jól og hefur fjölskyldan verið í eigin hamingjuheimi síðan :haha::haha:  Allir eru svo dásamlega hamingjusamir með nýja fjölskyldumeðliminn og þá sérstaklega stóru bræðurnir sem hreinlega dásama litla kútinn sinn :D

Vona að allir hafi átt ánægjuleg jól - hafið það gott yfir áramótin!


» 13 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 18:16:24 / amira

Haframjölskúlur

Mikið svakalega er gott að það eru að koma jól :)  Allri kennslu í skólanum er lokið og nú sit ég bara heima og læri fyrir prófin alla daga.  Það góða við það er að ég get leyft mér að njóta morgunverðarins í ró og næði yfir blaðinu áður en tekist er á við alvöru lífsins.  Og þessi morgunverður er alls ekki af lakara taginu ;)  Yndislega góðar haframjölskúlur, brakandi ferskar mandarínur og rjúkandi heitt karamellukaffi með kanilívafi.  Þessi samsetning á einhvern veginn bara við um jólin, svona rétt eins og hamborgarhryggurinn, maltið og appelsínið :haha:  Mmmmm... njótið aðventunnar ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 22:24:21 / amira

Enn í fullu fjöri

Hér er ég enn og komin 33 vikur á leið.  Ég og krílið höfum það bara afskaplega gott en ég verð nú reyndar að viðurkenna að bumban er farin að síga aðeins í svona eins og gengur og gerist þegar líða tekur að lokum meðgöngu ;)  Orkan getur því stundum verið af skornum skammti.  Það er nú kannski ekki skrýtið því nóg er að gera á öllum vígstöðvum; skólinn og heimanám, fyrirtækjarekstur og rekstur heimilis.  Svo er ég náttúrulega boltamamma sem er nú bara töluverð vinna - mót hér og þar og alls staðar hjá báðum guttunum mínum sem stunda fjórar tegundir íþrótta samanlagt ;)  

En þá kemur jógað sterkt inn hjá mér en það gerir kraftaverk fyrir orkubirgðir líkamans :haha:  Við hjónin fórum á parakvöld í jóganu um daginn þar sem farið var í gegnum nudd, fæðingarstellingar, öndun, slökun, rætt um tilfinningar og væntingar til hvors annars, hvers við væntum fyrir þetta nýja líf í framtíðinni o.fl. skemmtilegt og gaman :D  Þetta var ofsalega notalegt kvöld og lærðum við hjónin töluvert þrátt fyrir að vera á þriðju meðgöngu.  Nú er ég staðráðin í því að láta líkamann vinna fyrir mig í fæðingunni og njóta þess að vera til í stað þess að einblína á sársaukann sem óhjákvæmilega fylgir flestum fæðingum og mæður kvíða fyrir.  Ég er sett 10. janúar svo þetta fer að styttast.  Ég hlakka svo til að fá litla krílið í fangið og njóta þess að nú séu litlu hjörtun mín orðin þrjú :haha:    


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 12:41:08 / amira

Speki dagsins

Sá þetta einhvers staðar og fannst svo mikið til í þessu - það er nefnilega svo nauðsynlegt að staldra við og hugsa um lífið og tilveruna, algerlega fordómalaust!  Við komumst svo langt á jákvæðninni og bjartsýninni - bara ef við leyfum okkur það og hættum að rífa okkur niður við hver mistök því það gera allir mistök.  Sigurvegari er sá sem stendur upp og lærir af mistökum sínum í stað þess að leggjast í kör og reyna aldrei aftur 8) 

Spurning 1:

Ef þú vissir af óléttri konu sem ætti 8 börn fyrir.  Þrjú þeirra eru heyrnarlaus, tvö eru blind, eitt er fatlað og það þriðja með syfillis.  

Myndirðu mæla með því að hún færi í fóstureyðingu eða myndirðu
ráðleggja henni að eiga barnið?


Lestu næstu spurningu áður en þú skrollar niður og kíkir á svarið við þessari.   

Spurning 2:

Segjum að nú væri alþjóðakosning og kjósa ætti nýjan leiðtoga
heimsins.

Þitt atkvæði myndi skipta sköpum í kosningunni og þrír aðilar eru í
framboði. Hér koma staðreyndirnar um þessa þrjá aðila.

Frambjóðandi A:

Er í samkurli við spillta stjórnmálamenn og ráðfærir sig við
stjörnufræðinga. Hann hefur átt tvær hjákonur, hann keðjureykir og
drekkur 10 Martini drykki á dag.

Frambjóðandi B:

Hefur verið rekinn úr starfi tvisvar, sefur til hádegis. Notaði Ópíum
í framhaldsskóla og drekkur hálfa viskýflösku á hverju kvöldi.

Frambjóðandi C:

Hann er verðlaunuð stríðshetja og grænmetisæta. Hann reykir ekki, fær
sér bjór stöku sinnum og hefur aldrei staðið í framhjáhaldi

Hvern af þessum frambjóðendum myndirðu kjósa ?

Frambjóðandi A er Franklin D. Roosevelt

Frambjóðandi B er Winston Churchill

Frambjóðandi C er Adolf Hitler

Ef þú ert að velta fyrir þér að senda konuna úr spurningu eitt í
fóstureyðingu, þá varstu að drepa Ludwig Van Beethoven.


Áhugavert ekki satt? 

Fær mann til að hugsa um að vera ekki of
dómharður á fólk.
 

Munið:  Það voru óreyndir byrjendur sem byggðu Örkina hans Nóa en
atvinnumenn sem smíðuðu Titanic.


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 17:24:24 / amira

Jóga og almenn tilhlökkun

Ég verð bara að fá að segja aðeins frá því hvað ég er ánægð í jógatímunum mínum :D  Þarna mæti ég 2-3 í viku og gersamlega afhleð mig af streitu og hormónasveiflum sem eiga það til að hrjá bumbulínur á köflum ;)  Ohhh.... þetta er svo yndislegt!  75 mínútur af góðum teygjum, hummi, mildum danshreyfingum og ólýsanlegri slökun og hugleiðslu :haha:  Svo dansar litla gullið mitt með í maganum :lol:  Í lok hvers tíma leggjumst við allar á dýnu með fullt af mjúkum koddum undir höfði og milli fóta svo grindin haldist bein, drögum teppi upp að nefi, slökum svo á eða hreinlega sofnum á meðan jógakennarinn gengur á milli okkar og spreyjar yfir okkur með einhvers konar léttum og endurnærandi ilmúða :D  Þarna ætla ég að vera fram að fæðingu.  Í bónus er svo boðið upp á parakvöld þarna fyrir óléttar (æ, mér finnst þetta svo leiðinleg orð... ólétt, ófrísk, þunguð...)  konur og maka þeirra þar sem farið er í gegnum nudd, öndunaræfingar, slökun og annað dekur og ætlum við hjónin að skella okkur bráðum ;)  Ég hlakka til ;) 

Nú eru ekki nema rétt um 2 mánuðir eftir af meðgöngunni og okkur farið að hlakka til að sjá krílið.  Bræðurnir bíða spenntir þó svo sá yngri eigi svolítið erfitt með þetta ennþá.  Hann vill helst ekkert fá þetta nýja systkini heim heldur skilja það bara eftir á spítalanum :S  Sá eldri er voða spenntur og hefur sérstaklega gaman af því að leggja eyrað á magann minn og hlusta á hjartsláttinn í krílinu eða hikstann :D     

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 15:33:08 / amira

Hvað set ég ofan á brauðið mitt?

Einhver var að spyrja mig að því hvað ég nota sem álegg á brauð og hrökkbrauð í stað unninna kjötvara.  Hmmm... reyni því að telja eitthvað upp!  Ég nota náttúrulega þetta týpíska - mikið grænmeti (tómata, agúrkur, paprikur o.fl.), ávexti (banana, epli), alls kyns tegundir af ostum og sykurlausar sultur.  Sérstaklega finnst mér gott að fá mér glænýtt speltbrauð eða fjölkornabrauð með osti og bönunum eða osti og papriku.  Svo geri ég stundum salöt s.s. eggja- og agúrkusalat, stundum set ég papriku út í salatið líka, túnfisksalat úr bragðmiklum og ekta spænskum túnfiski (ekki þetta bragðlausa dót sem selt er í mörgum niðursuðudósunum).  Einnig bý ég til hummus ofan á hrökkbrauðið, eggaldinmauk, linsubaunakæfu, kotasælusalat með túnfiski og rauðlauk o.fl. Jebb - man ekki meira í bili ;) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 14:35:40 / amira

Kókópuffs, kleinur og kókómjólk

Alveg er það merkilegt hvernig matarlöngunin breytist á meðgöngu.  Ég hef ekki borðað kókópuffs frá því ég var barn en allt í einu, þegar ég stóð í Bónus fyrir nokkrum vikum síðan, rak ég augun í kókópuffs pakka og yfir mig helltist þetta líka ólýsanlega kókópuffs hungur :|  Það var sem maðurinn minn hefði lesið hugsanir mínar og spurði hvort við ættum að kaupa einn pakka.  Við sem ALDREI í okkar 10 ára hjónabandi höfum svo nokkuð sem litið á kókópuffs pakka, hvað þá keypt einn slíkan 8|  Strákarnir okkar urðu náttúrulega himinlifandi þar sem við virðumst tilheyra deyjandi stétt foreldra ef marka má orð eldri drengsins míns - nefnilega þeirra foreldra sem enn dettur í hug að bjóða bara hafragraut eða cheerios með ab mjólk í morgunmat og ekkert sykursull.  En til þess að missa ekki alveg virðinguna sem fornaldarforeldri þá settum við reglu - kókópuffsið tilheyrir "laugardagsnamminu", þ.e. bara kókópuffs á laugardögum.  Ég verð nú samt að koma því að, drengjunum mínum til hróss, að þeir gleyma yfirleitt að biðja um þetta og mamman situr því næstum ein að óhollustunni :^)  Ég hugsa því að einn pakki verði nóg fyrir þessa fjölskyldu ;)  

Ég virðist greinilega þjást af einskonar k-matarlöngun því kókómjólk og kleina er orðin að þráhyggju hjá mér ef ég stíg fæti mínum inn fyrir bakarísdyr.  Þess vegna hef ég forðast bakaríin sem heitan eldinn en fell stundum fyrir freistingum Reynis bakara á Dalveginum - frábært bakarí.  Að öðru leyti held ég að ég standi mig bara ágætlega í matarmálum - auðvitað hafa læðst á mig einhver kíló en hver er að hengja sig í kílóatöluna þegar lítið kríli spriklar um allt í maganum :haha:   Ef eitthvað verður eftir þegar storkurinn er farinn verður bara tekið á því með þeim danska aftur að ógleymdu Boot Campinu góða.  Árskortið mitt góða bíður mín að lokinni meðgöngu :haha:  Þangað til stunda ég sund af krafti og meðgöngujóga ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 22:30:02 / amira

Maður lifandi!!

Jæja - það líður bara allt of langur tími milli blogga hjá mér!  En mér og bumbukrútti líður bara alveg einstaklega vel :)  Bumbukrútt stækkar og stækkar og mamman er löngu hætt að sjá niður á tær sínar ;)  Ég hef verið að reyna að bæta aðeins á fataskápinn þar sem "mjóu" fötin eru löngu hætt að passa vegna kúlunnar og fötin frá því forðum daga þegar skvabbið fékk að leika lausum hala um maga og mjaðmir passa bara ekki heldur!  Ekki að þau séu orðin of lítil heldur eru þau bara of víð um rass, klof, handleggi og þar fram eftir götunum.  Svolítið skrýtið að upplifa fólk segja við mig að ég sé bara ekkert nema kúlan þar sem á hinum tveimur meðgöngunum var ég líkari kringlóttum körfubolta en óléttri konu ;)  Ég hef sem sagt ekki misst áhugann á fatakaupum þrátt fyrir stækkandi maga enda er bara svolítið gaman að spígspora fín og flott með kúluna beint út í loftið og bros sem nær milli beggja eyrna :) 

Ég fór annars á heilsusýninguna í Egilshöll um helgina og sá þar margt markvert.  Ég heillaðist sérstaklega af íslenskri framleiðslu á ókemískum kremum og öðru slíku og keypti mér m.a. bumbugaldur á bumbuna frá Villimey og fótasmyrsl frá Sólu.  Svo fór ég heim, lét renna í freyðibað og smurði mig hátt og lágt með nýju kremunum mínum :) 

Annað sem sló í gegn hjá fjölskyldunni var lífræna torgið hennar Sollu grænu.  Fyrir nokkru síðan hætti ég að kaupa unnar kjötvörur, þ.á.m. álegg á brauð.  Síðan þá höfum við verið að uppgötva ýmis matvæli sem hægt er að setja á brauð og þarna bættist eitt slíkt í hópinn... nefnilega hnetusmjörið hennar Sollu grænu - 99,5% hnetur, enginn sykur né aukaefni.  Strákarnir mínir hreinlega kolféllu fyrir þessu og er dósin næstum því búin.  Svo bættum við á döðlubirgðir okkar en lífrænu döðlurnar hennar eru hreint lostæti líka.  Mjög sniðugar í nestisboxið ásamt ávöxtum. 

Jæja - betri helmingurinn verður erlendis alla næstu viku og fer í fyrramálið svo ég ætla að næla mér í knús og krús áður en hann fer ;) 

Þangað til næst...  


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 18:35:20 / amira

Fiskur er toppur tilverunnar

Mikið er hrikalega gott að geta loksins fengið sér fisk án þess að horfa í augun á honum á diskinum eða spýta beinum út úr munnvikinu eins og sjómennirnir í gamla daga!  Fiskurinn í útlandinu var nefnilega alltaf borinn fram með roði, beinum og jafnvel hausnum líka 8|  Bragðgóður var hann alltaf en bragðið fór eiginlega fyrir lítið þar sem svo mikill tími fór í að tína beinin úr, rífa hausinn frá og roðfletta áður en maður gat notið bragðsins sem rétturinn bauð upp á :(  Nú sit ég hins vegar hér og bíð eftir dýrindis salfiskrétti sem ég er með í ofninum, með hvítlauk, rauðlauk, tómötum, kartöflum og papriku :)  Með þessu er ég svo með ferskt salat með þurrkuðum trönuberjum og ristuðum furuhnetum :)  Alveg ótrúlega girnilegt!!!  :P   Engin bein, engin haus, ekkert roð og ekkert útvötnunarvesen í nokkra daga áður en hægt er að borða fiskinn :)  Dásemd ;) 

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 11:33:21 / amira

Þakkir

Takk kærlega fyrir hamingjuóskirnar :)  Jább, barasta bumbubúi á leiðinni eftir allt saman :)  Kúlukrúttið hefur það bara óskaplega gott af hreyfingum og skoðunum að dæma - hér gengur maginn í bylgjum daginn út og daginn inn ;)  Orkumikið krútt hér á ferð :D  Við hjónin förum í sónar á morgun - hvort krúttið leyfi okkur að sjá kynið kemur í ljós en mikið hlakkar okkur til að sjá það sprikla :) 

Það er svolítið skrýtin tilfinning að sjá vigtina fara upp á við nú þegar undanfarið ár hefur farið í það að fá hana niður 8|  Þetta eru nú engin ósköp sem hafa bæst á mig ennþá ;)  Annars er ég ekkert mikið að spá í kílóin enda er ég meðvituð um hollt mataræði og hreyfingu hvort sem er á meðgöngu eða ekki :) Ég varð reyndar að hætta í Boot Camp þar sem sú hreyfing hentar ekki bumbubúum en hef skráð mig í meðgönguleikfimi og meðgöngujóga í staðinn ;) 


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 10:29:06 / amira

Komin heim í heiðardalinn

Komin heim eftir ævintýralega dvöl í útlandinu! Skemmtilegur tími að baki og skemmtilegir tímar framundan líka ;) Eftir bloggleysi undanfarinna vikna vegna hruns ferðatölvunnar er svo sannarlega kominn tími á það að ég upplýsi breytingarnar sem eru í vændum hjá okkur í fjölskyldunni :)

:haha: Ég er ekki lengur kona einsömul því lítil

bumbubaun hefur skotið hjá mér rótum :haha: 

Þessi baun er nú reyndar ekki svo lítil lengur því langt er nú liðið á fimmta mánuð þroska hennar og áætlaður fæðingartími er í byrjun janúar :) Við erum náttúrulega himinlifandi með nýja erfingjann en yngsti meðlimur fjölskyldunnar á reyndar svolítið bágt með stöðumissinn sem sá yngsti ;) Tóm hamingja og bjartsýni hér á bæ :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 11:21:04 / amira

Hitabylgja ríður yfir landið

Hér ræður hitabylgja ríkjum þessa dagana en hitinn hefur verið að fara upp í 45 stig á sumum stöðum í landinu.  Sem betur fer hefur hann "bara" haldið sig í 35 stigum hér hjá okkur ;)  En annars er allt gott að frétta nema hvað lítill tími hefur gefist í bloggskrif undanfarið enda ég upptekin af því að sóla mig og börnin, taka á móti ættingjum í heimsókn og ferðast um :)  Ég talaði um breytingar í síðasta pósti... ;)  Ég ætla að bíða aðeins lengur með að upplýsa þær eða þar til allt er staðfest ;)  Hafið það gott - vona að íslenska rigningin láti bráðum undan og þið fáið notið sólargeislanna í sumar :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 11:57:08 / amira

Psssstttt.....

Breytingar í sjónmáli en meira um það seinna ;) 


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.06.2006 18:43:40 / amira

Komin í sólina

...og líður hreint alveg dásamlega :haha::haha:  Hef þetta ekki lengra að sinni, er upptekin við það að slaaaaaaka aaááá.............. ;) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 19:56:18 / amira

Síðasti dagur maímánaðar

Er ekki við hæfi að rita nokkrar línur á bloggið svona í lok maímánaðar?  Júnímánuður er mér enn fjarlægur í huga því það er sem mér finnist ég hafa gengið frá jólaskrautinu fyrir rétt sléttri viku síðan þó svo liðnir séu fimm mánuðir síðan það verk var unnið :S  Tíminn líður hratt og allt er þetta partur af því að eldast ;)  Eins er með bloggið, mér finnst ég hafa sest hér niður í gær en ég hef víst ekkert skrifað í um tvær vikur :^) 

En hvað hef ég verið að gera?  Hef náttúrulega verið á kafi í vinnu síðan prófalistinn tæmdist og svo hef ég bara verið upptekin af því að vera mamma, dóttir, systir, vinkona, frænka og eiginkona í fjarbúð því karlinn er enn eina ferðina floginn úr hreiðrinu vegna vinnu erlendis :cry:  Upptekin af þessum týpísku og yndislegu hlutverkum sem stundum sitja á hakanum þegar hempa nemans er annars vegar :(   Þessa stundina er ég að pakka saman léttum sumarfötum og sólarvörn því útlandið kallar og það strax á laugardaginn :haha::haha:  Ég var að tala við bóndann sem var nýkominn heim úr vinnunni, sat á veröndinni í sætu íbúðinni okkar við ströndina og hlustaði á öldugljáfrið í 28 stiga hitanum sem vermir landið um þessar mundir :haha: Ó já, ég hlakka til 8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12